B.S. í stærðfræði frá Háskól Íslands 1974,
Háskóli Íslands og Hafnarháskóli, kandidatspróf í læknisfræði 1980,
Háskólinn í Tübingen, Dokt.med. 1988.
Störf:
Kandidat við Ljungby Lasarett 1980-82, aðstoðarlæknir við ýmsar
sjúkrastofnanir á Norðurlöndum 1982-92, sérfræðingur í heimilislækningum við
Heilsugæslu Djúpavogshéraðs frá 1992.
Fyrrverandi maki:
Svanhildur Jónsdóttir, sjúkraliði, f. 1955, slitu sambúð
1996.
Börn:
Helga Kristín f. 1990, Davíð Karl f. 1992.
Hið bezta:
Fyrsta árið í menntaskóla var erfitt. Ég var í fyrsta árgangi
Menntaskólans við Tjörnina. Ég tók bekk utanskóla og þurfti þess vegna að
skipta um skóla. Breytingin úr 1. bekk í 5. Z var til bóta, enda mega sáttir
þröngt sitja.
Takmark fyrir stúdentsafmælið 2022:
Ég er ekki viss um að veröldin verði svo
gömul og þess vegna verð ég ánægður ef ég og aðrir lifa svo lengi. Ef allt
fer á besta veg, hef ég e.t.v. opnað heilsuhæli á Tenerife, m.a. fyrir
þreytta M.R.-inga.