Cand. med. frá Háskóla Íslands 1978,
lækningaleyfi 1980; sérfræðingur í lyflækningum 1985 og í meltingarsjúkdómum
1991.
Störf:
Aðstoðarlæknir á ýmsum sjúkrahúsum og heilsugæzlulæknir á Akureyri
1978-81; undirlæknir og deildarlæknir við Kärnsjukhuset í Skövde 1981-89,
lyflæknir við Sjúkrahús Selfoss 1989-91, yfirlæknir í Centrallasarettet í
Växjö í Svíþjóð frá 1991, yfirlæknir við King Faisal Specialist Hospital and
Research Center í Riadh í Saudi Arabíu 1995-96.
Maki:
Sigríður Steinarsdóttir (6.U), f. 1952.
Börn:
Hulda María f. 1973; Arna Dögg f. 1975; Birna f. 1981; Þórhallur f.
1982; Vera f. 1989.
Hið bezta:
Að það var viss agi og hefðir voru virtar. Þrátt fyrir frekar
ófullkomin húsakynni stóðst M.R. vel samanburð við aðra menntaskóla og maður
er töluvert stoltur yfir að hafa verið í M.R..
Takmark fyrir stúdentsafmælið 2022:
Meðal markmiða skólans á að vera að
fylgja eftir upplýsingabyltingunni, e um leið halda á lofti íslenzkri
menningu, sögukunnáttu og tungu.