Hjörtur Þór Hauksson,
f. 8. nóvember 1952.

Nám að loknu stúdentsprófi:
Cand.med. frá Háskóla Íslands 1981, sérfræðingur í heimilislækningum frá Svíþjóð 1988.
Störf:
Kandidatsnám 1981-82 við Sjúkrahús Akraness, Heilsugæslustöðina á Ísafirði og Landspítalann, Eskilstuna í Svíþjóð 1983-87 og heilsugæslulæknir á Ólafsfirði frá 1987.
Maki:
Þuríður Ástvaldsdóttir, kennari og landafræðingur, f. 1951.
Börn:
Heimir f. 1984; Ástvaldur f. 1989; Þórdís Edda f. 1991.
Hið bezta:
Samstaðan innan bekkjarins.
Hið versta:
Bekkir voru "óblandaðir", þ.e. strákar og stelpur sér og aðstöðuleysið til allra hluta.
Takmark fyrir stúdentsafmælið 2022:
Að lifa lífinu lifandi.