Hjalti Þórisson,
f. 25. desember 1950.

Nám að loknu stúdentsprófi:
B.A. gráða í félagsfræði ásamt uppeldisfræði frá Háskóla Íslands 1972-74; nám í Gautaborgarháskóla 1980-82 og Háskóla Íslands 1982-83 (kennsluréttindi) og 1994-95.
Störf:
Kenndi meðal annars við Menntaskólann í Kópavogi; starfaði við Seðlabanka Íslands og Húsnæðisstofnun ríkisins og var forstöðumaður Miðstöðvar fólks í atvinnuleit um skeið; margvíslegar verklegar framkvæmdir, félagsstörf og ritstörf.
Maki:
Guðrún Björk Tómasdóttir, bókavörður, f. 1953.
Börn:
Jóhannes f. 1972; Margrét Einarsdóttir f. 1977; Teitur f. 1980; Guðný f. 1980.
Hið bezta:
Gægjugötin.
Hið versta:
Gægjugötin.
Takmark fyrir stúdentsafmælið 2022:
Að týna ekki stúdentshúfunni minni.