Birgir Hauksson,
f. 20. janúar 1951.
Nám að loknu stúdentsprófi:
Líffræði við Háskólann í Osló 1972-74, búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1975, umhverfisfræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum 1992.
Störf:
Kennari við Grunnskólann á Hellissandi 1975-78, starfsmaður Skógræktar ríkisins frá 1978.
Maki:
Gróa Erla Rögnvaldsdóttir, kennari og fóstra, f. 1959.
Börn:
Dagbjört f. 1994.
Hið bezta:
Allt var þetta ósköp ljúft í minningunni, enda gerir fjarlægðin fjöllin blá.
Takmark fyrir stúdentsafmælið 2022:
Grána meira - en fitna lítið.