Þórður Friðjónsson,
f. 2. janúar 1952.

Nám að loknu stúdentsprófi:
Hagfræði og viðskiptafræði við Háskóla Íslands, cand. oecon. 1977; hagfræði við Queen's University, Kanada, M.A. 1978.
Störf:
Forstöðumaður hagdeildar Félags íslenskra iðnrekenda 1978-80; stundakennari við viðskiptadeild H.Í. 1979-87; efnahagsráðgjafi forsætisráðherra 1980-86; forstjóri Þjóðhagsstofnunar frá 1987.
Maki:
Þrúður Guðrún Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra náttúrufræðinga, f. 1950.
Börn:
Sigríður f. 1970; Steinunn f. 1972; Friðjón f. 1977; Haraldur Ingólfur f. 1979.
Hið bezta:
Góður andi setti svip sinn á skólann.
Hið versta:
Aðbúnaður var allur fremur sparlegur.
Takmark fyrir stúdentsafmælið 2022:
Að geta litið sáttur um öxl.