Rósa Steinsdóttir,
f. 24. maí 1952.

Nám að loknu stúdentsprófi:
B.A. í sálfræði frá Háskóla Íslands 1978; myndlist og myndþerapía í Hertfordshire College of Art & Design, post graduate diploma in art therapy 1980.
Störf:
Myndþerapisti hjá barna- og unglingageðdeild Landspítalans frá 1981; kennsla, námskeiðahald og rekstur eigin stofu frá 1981.
Maki:
Agnar H. Kristinsson, sagnfræðingur og framhaldsskólakennari, f. 1954.
Börn:
Hrafn Árnason f. 1972; Hildigunnur Agnarsdóttir f. 1986; Tómas Agnarsson f. 1987; Hrafnhildur Agnarsdóttir f. 1993.
Hið bezta:
Lifandi og skemmtileg kennsla einstakra kennara, ástæðulaust að nefna nöfn. Hinar ýmsu sögulegu hefðir.
Hið versta:
Íhaldsemi og skortur á sveigjanleika þar sem það átti ekki við.
Takmark fyrir stúdentsafmælið 2022:
Að ferðast til Asíu!