Leiklist við The Webber Douglass Academy of
Dramatic Art 1976-78; miðausturlandafræði við Columbia University, G.S.,
B.A. 1989 og er sem stendur að vinna að M.A. í sama fagi.
Störf:
Tískusýningastörf í Evrópu fyrir Valentino, Lanvin, Louis Feraud
o.fl.1972-76 og 1978-80; í Bandaríkjunum fyrir Chanel, Balenciaga, Givenchy
o.fl. 1980-85; kennsla í tískusýningastörfum við Barbizon School of Modeling
í New York frá 1996.
Hið bezta:
Gott fólk og góður agi, en ekki of strangur, því oft var glens;
einnig var gott félagslíf, söngur, leiklist, dans og ferðalög.
Hið versta:
Ekkert var slæmt við menntaskólann. Þó hefði mátt vera meira
námsefni á síðustu tveimur árunum til undirbúnings fyrir háskólanám.
Takmark fyrir stúdentsafmælið 2022:
Að halda heilsu, mæta í studentsafmælið
2022, vera búin að ljúka M.A. námi og gefa út a.m.k. tvær bækur.