Til baka
Samskipti kynjanna
Þrátt fyrir margrædd þrengsli í MR á þessum tíma urðu aðeins til 16 hjónabönd
innan árgangsins eftir því sem best er vitað. Þar af voru 3 í einum bekk. Af
þeim 16 lifa 11 enn. Ávextir þessara kynna eru 41 árgangsbarn. En annars eru
242 af árganginum nú í hjónabandi þar af 30 í sínu öðru hjónabandi og af þeim
hafa 6 valið sér maka af erlendum uppruna í annarri tilrauninni. Auk þessara
hafa 15 gengið í hjónaband og skilið og eru enn ólofaðir/aðar og loks eru 3
okkar tvígift og tvískilin og enn laus og liðug.
Flestir hafa leitað sér maka meðal landa sinna en margir námu erlendis og eru 25
erlendir makar í hópi maka okkar, þar af eru líklega aðeins 3 karlar, tveir
kvæntir læknum og einn kvæntur hjúkrunarkonu. Athygli vekur að lang flestir eru
búsettir á Íslandi. Erlendis búa nú að því er best verður séð 23, 12 stúlkur
og 11 piltar, þar af eru ein árgangshjón. Búseta dreifist um allan heim m.a.
til Saudi Arabíu og Bahrain. Barneignir í árganginum samkvæmt fengnum
upplýsingum deilast þannig á bekki:
| Bekkur | Börn
|
|---|
| A | 57
|
| B | 69
|
| C | 58
|
| D | 67
|
| M | 43
|
| Q | 34
|
| R | 51
|
| S | 50
|
| T | 53
|
| U | 54
|
| X | 59
|
| Y | 66
|
| Z | 65
|
| Samtals | 726 börn
|
|---|
Börn para í árganginum eru tvítalin (ekki skipt á milli bekkja eru hjá báðum) en
þau voru 41. En börnin fæddust ekki öll eftir stúdentspróf. Á árinu 1972
fæddust 15 börn sem áttu foreldri í árganginum, þar af 8 fædd af stúlkum í
árganginum. Fyrir 1972 höfðu MR stúdentar '72 svo átt 13 börn. Alls voru því
28 börn í árganginum þegar stúdentsárinu lauk, 12 mæður voru þar og 16 feður
og árgangsbörnin í þessum hópi voru 2. Um barnabörn spurðum við ekki en þau
eru eflaust orðin all nokkur.