Í því sem hér fer á eftir eru dregnar saman ýmsar forvitnilegar tölulegar upplýsingar um MR-stúdenta 1972. Allar eru upplýsingarnar eins og annað í þessu riti alfarið byggðar á upplýsingum sem menn hafa veitt sjálfir og eru nákvæmni þeirra því á þeirra ábyrgð. Ritnefndin ákvað að stunda engar sjálfstæðar rannsóknir, ættfærslur eða viðbætur. Ekki eru heldur birtar upplýsingar um foreldra okkar eins og gert hefur verið stundum í sams konar bókum. Fauna þessi er því ekki að reyna að vera neitt ættfræðirit, heldur aðeins stuttaralegt yfirlit yfir okkur öll og hvað við höfum verið að sýsla síðustu 25 árin. Það er þó aðeins fjallað um nám , störf og fjölskylduaðstæður en t.d. sleppt allri umfjöllun um félagsmálastörf og ritstörf sem hjá mörgum í árganginum eru mikil að vöxtum og góð. Í þessar bók er gerð grein fyrir 303 einstaklingum sem útskrifuðust vorið 1972 frá MR. Af þeim eru 3 piltar látnir og um 8 einstaklinga bárust engar upplýsingar og verða því nöfn og Faunumynd að duga þar. Þetta eru 109 stúlkur eða 36% og 194 piltar eða 64%. Í skýrslu MR um starfsárið 1971-1972 er sagt að 301 hafi lokið stúdentsprófi vorið 1972 og 6 haustið 1971 eða alls 307. Ekki kunnum við skýringu á þessu en teljum þessa 303 sem hér eru til árgangsins en vitað er um a.m.k. 2 í tölu skólans sem tóku utanskólastúdentspróf án nokkurra tengsla við árganginn og er þeirra ekki getið hér. Árgangurinn er hvað sem öðru líður hinn allra stærsti sem útskrifast hefur frá Menntaskólanum í Reykjavík fyrr og síðar.